Myndaskoðun
Hægt er að skoða myndir í tilgreindum myndasöfnum með því að velja leitarstrengina hér að ofan. Þannig má fletta í gegnum söfn einstakra ljósmyndara og fá hugmynd um það myndefni sem er að finna í Ljósmyndasafni Íslands.

Hvar erum við

Ljósmyndasafn Íslands er með reglubundnar myndasýningar í safnahúsi Þjóðminjasafns Íslands að Suðurgötu 41 í Reykjavík bæði í Myndasal á jarðhæð og á Vegg framan við salinn.

Ljósmyndasafn Íslands er með aðsetur í Vesturvör 16-20 í Kópavogi. Hægt er að senda fyrirspurnir um myndir og annað sem varðar myndasafnið á eftirtalin netföng:

inga.lara@thjodminjasafn.is

ivar@thjodminjasafn.is


 


Ljósmyndasafn þjóðminjasafns Íslands

Söfnun

Söfnun mynda hefur verið þáttur í starfsemi Þjóðminjasafnsins frá stofnun þess 1863. Fyrst voru það málaðar myndir, sem safnað var, en eftir að söfnun ljósmynda hófst 1908 tóku þær fljótt yfirhöndina. Fyrsta glerplötusafn eða filmusafn frá ljósmyndara barst til safnsins 1915 og enn berast slík söfn bæði frá einstaklingum, ljósmyndastofum og fyrirtækjum. Myndasafnið fékk heitið Ljósmyndasafn Íslands í nýrri reglugerð um Þjóðminjasafnið sem tók gildi haustið 2006.

Söfnun mynda og þá fyrst og fremst ljósmynda er enn snar þáttur í söfnunarstarfi Þjóðminjasafnsins. Flestar myndagjafir berast við uppgjör á dánarbúum. Safnað er samkvæmt sérstakri söfnunarstefnu, en flestar gjafir eru þegnar.

  

© Höfundarréttur 2012 Þjóðminjasafn Íslands