Ljósmyndasafn Íslands er með reglubundnar myndasýningar í safnahúsi Þjóðminjasafns Íslands að Suðurgötu 41 í Reykjavík bæði í Myndasal á jarðhæð og á Vegg framan við salinn.
Ljósmyndasafn Íslands er með aðsetur í Vesturvör 16-20 í Kópavogi. Hægt er að senda fyrirspurnir um myndir og annað sem varðar myndasafnið á eftirtalin netföng:
Við birtingu mynda úr Þjóðminjasafni Íslands ber að geta þess hvaðan þær eru fengnar, svo og nafn ljósmyndara. Lánþegi hefur aðeins rétt til þess að birta mynd einu sinni og er óheimilt að framselja myndina til birtingar. Myndum sem fengnar eru til birtingar ber að skila til myndasafns Þjóðminjasafns eigi síðar en 30 dögum eftir vinnslu. Þjóðminjasafnið óskar eftir að fá eitt eintak af þeim bókum sem birta myndir frá safninu.
Öll vinnsla á myndefni safnsins fer fram í myndastofu þess og eru eftirtökur eftir myndum ýmist leigðar eða seldar eftir því sem við á.
LJÓSMYNDASAFN ÍSLANDS -VERÐSKRÁ
VERÐSKRÁ 2012
| án VSK | með VSK |
||
| M001 | Myndaleiga tvívíð | 8.845 | 11.100.- |
| M002 | Myndaleiga þrívíð | 13.227 | 16.600.- |
| M003 | Innskönnun | 1.036 | 1.300.- |
| M004 | Myndir skrifaðar á disk |
661 | 830.- |
| M005 | Myndasala 10x15 cm |
956 | 1.200.- |
| M006 | Myndasala 13x18 cm |
1.139 | 1.430.- |
| M007 | Myndasala 18x24 cm |
1.753 | 2.200.- |
| M008 | Myndasala 24x30 cm |
2.271 | 2.850.- |
| M009 | Myndasala 30x40 cm |
4.104 | 5.150.- |
| M010 | Myndasala 40x50 cm |
5.418 | 6.800.- |

