Ljósmyndasafn Íslands er með reglubundnar myndasýningar í safnahúsi Þjóðminjasafns Íslands að Suðurgötu 41 í Reykjavík bæði í Myndasal á jarðhæð og á Vegg framan við salinn.
Ljósmyndasafn Íslands er með aðsetur í Vesturvör 16-20 í Kópavogi. Hægt er að senda fyrirspurnir um myndir og annað sem varðar myndasafnið á eftirtalin netföng:
Myndasala
Sérstök myndastofa hefur verið starfrækt á Þjóðminjasafni frá 1990 og annast ljósmyndari safnsins gerð á eftirtökum þeirra mynda og muna sem eru varðveittir í safninu og í Ljósmyndasafni Íslands. Þjónustan er öllum opin en bæði einstaklingar og stofnanir leita eftir því að fá myndir úr fórum safnsins bæði til einkanota og opinberrar birtingar.

